Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Að forðast annað kjaftshögg

Fyrir tilstilli löggilts endurskoðenda er loksins að koma í ljós hvaða aðferðum var beitt þegar útrásarvíkingarnir tæmdu bankakerfið. Eftir er að finna út hvers vegna þessir menn steyptu sínum eigin bönkum í glötun í stað þess að reyna að reka þá eins og menn. Aðalsteinn Hákonarson á heiður skilið fyrir þessar upplýsingar.

Hvað er svo til ráða í stöðunni svo leikurinn endurtaki sig ekki, ef bankar verða einkavæddir á ný ? Ljóst er að "hin ósýnilega hönd markaðarins", sem nú er búinn að gefa landsmönnum dúndrandi kjaftshögg sem telja verður tæknilegt rothögg. Hún má ekki hafa sama svigrúm í framtíðinni.

Neyðarlögin voru sterk aðgerð sem björguðu miklu, stjórnvöld brugðust hart við þá, en var það nóg ?  Nei, frekari ráðstafanir eru nauðsynlegar, t.d. þetta:

  1. Setja verður ný lög um ríkisábyrgð á sparifé. Neyðarlögin eru sterkt fordæmi um að ríkið gengur feti framar í ábyrgð á sparireikningum landsmanna en verið hefur. Eins gott að festa það í lögum.
  2. Skilja verður fjárfestingarbanka frá sparibönkum. Þetta er bein afleiðing af áðurnefndum lögum.
  3. Setja verður veðbandslög til að treysta veð fyrir bankalánum. Stór hluti af ógæfunni var heimild banka til að lána fé af sparireikningum út á meira og minna verðlaus hlutabréf, bréf sem voru skráð á 15 - 20 sinnum hærra verði í kauphöllinni en eðlilegt var. Þetta má hindra með því til dæmis að endurskilgreina fyrsta annan og þriðja veðrétt og banna að sparifé sé lánað nema út á fyrsta veðrétt.

Vel heppnuð endurskoðun á löggjöf um fjársýslu er forsenda þess að eðlileg fjármálastarfsemi geti þróast hér. Útrásarskeiðið, sem kalla má grúpp-kúpp-og-fúpp tímabilið, bauð ekki upp á eðlilega fjármálastarfsemi, það er ekki einu sinni hægt að segja að útrásargaurarnir hafi verið í Matador með gjaldeyri landsmanna. Í alvöru Matador hefðu þeir fyrir löngu verið búnir að draga spjaldið sem stendur á: Farðu beina leið í steininn.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband